BLABLA

PODCAST STUDIO

Hlaðvarpsstúdíó fyrir þau sem vilja alvöru hljóðgæði og myndrænt samfélagsmiðlaefni á aðgengilegan og hagkvæman hátt.

Blabla er ca 30 fm hlaðvarpsstúdíó innréttað fyrir hljóð og mynd. Bakgrunnur er mattur svartur og á öllum veggjum er aukalag af steinull og sérstakt hljóðvistar-efni. Í stúdíóinu eru fjórir Shure SM7B hljóðnemar, Rodecaster pro mixer, tvær Logitech MX Brio vefmyndavélar og led panelar. Ef þú ert með Macbook þá plöggarðu bara einni snúru í tölvuna frá Thunderbolt og getur byrjað að taka upp hljóð og mynd. Stúdíóið er í Skeifunni 19. Það er lyfta en aðgengi að salerni er frekar þröngt fyrir hjólastóla.

Búnaður

4x Shure SM7B hljóðnemar á örmum

2x Logitech MX Brio vefmyndavélar

4x Led ljós panelar

Rodecaster Pro mixer

OWC Thunderbolt bridge sem tengir allt saman.

Verðskrá

Eitt skipti (ca 90 mín) 29.900 krónur

*Fastakúnni (ca 360 mín í mánuði) 34.900 krónur

Þjónusta frá 49.900 krónur

*Fastakúnni greiðir mánaðarlega og er uppsagnarfrestur tveir mánuðir.